|
|
 |
Avis - alþjóðlegur brautryðjandi
Það eru meira en 60 ár síðan Warren E. Avis lagði grunninn að þeirri alþjóðlegu og heimsþekktu bílaleigu, sem Avis er í dag. Hann var fyrsti maðurinn sem sá þörfina og möguleikana fyrir að tengja saman flugferðir viðskiptamannsins og bílaleigu. Hans sýn var gerð að veruleika þegar fyrsta leigustöðin var opnuð í flugstöðinni í Detroit árið 1946. Þessi litla leigustöð hefur vaxið stöðugt síðan þá og er Avis nú í 160 löndum víðsvegar um heim með 4.400 leigustöðvar.
"We try harder" varð til
Avis bauð einni þekktustu auglýsingastofu að koma með tillögu að auglýsingaherferð. Svarið frá auglýsingastofunni var: gefið okkur 90 daga til að læra um Avis og fylgið svo tillögum okkar 100%. Þetta var ekki flókið svar og Avis samþykkti það.
Avis var á þeim tíma tiltölulega lítið þekkt fyrirtæki með 10% markaðshlutdeild árið 1962. Könnun var gerð og kom fram að Avis var nr. 2
Herferðin gekk út á að Avis væri nr. 2 og "tried harder".
Fljótlega eftir að fyrstu auglýsingarnar hófust fóru viðskiptavinir að streyma til Avis. Á aðeins 4 árum fór markaðshlutdeild Avis úr 10% í 35% .
Upprunalega herferðin varaði í 5 ár og síðan hefur Avis haldið sig við "We try harder" sem vörumerki.
Spurningin var: hvað myndi Avis segja ef þeir yrðu nr. 1? Svarið var: við myndum ekki segja neitt - það er skemmtilegra að vera nr. 2
"We try harder" 40 ára
Avis heldur upp á 40 ára afmæli "We try harder" vegna stöðuleika og mikilvægis slagorðsins. "We try harder" skilst vel af samstarfsfólki og viðskiptavinum.
Það skapar ímynd og samband milli viðskiptavina og starfsmanna.
Avis hefur ekki sofnað á verðinum um að varðveita arfinn sem Warren E. Avis kenndi okkur fyrir 40 árum síðan.
Avis gerir sitt besta hvern dag til að veita viðskiptavinum sínum sem besta og hagkvæmasta þjónustu og að gera stöðugt betur.
Eitt af megin stefnumálum er að þróa þjónustu okkar og kerfi á hverju landssvæði fyrir sig , þannig komumst við í flokk fremstu bílaleiga í heimi.
Starfsfólk hjá Avis óskar þess að vera í sambandi við viðskiptavini sína , þannig er hægt að móta þjónustu Avis fyrir hvern og einn. Okkar fyrirtæki er sveigjanlegt og mótar sína þjónustu og verð að þörfum okkar viðskiptavina. Avis er fyrir sína viðskiptavini , við veitum okkar samkeppnisaðilum um allan heim harða samkeppni.
Á hvejum degi leggjum við okkur fram að veita þér viðskiptavinur góður okkar bestu mögulegu þjónustu og verð.
Avis - We try harder- við gerum betur
|
|
|
|