 |
Fyrirtækjaþjónusta Avis býður viðskiptavinum sínum uppá hagstæð verð, framúrskarandi þjónustu, afgreiðslustaði um allt land auk annarra þæginda. Avis leggur mikla áherslu á persónulega þjónustu og er slagorðið “We try harder” enn í fullu gildi þrátt fyrir að vera orðið 40 ára.
Hagstæð verð
Með fyrirtækjasamningi Avis, tryggjum við hagstæð verð allt árið. Um er að ræða daggjald að viðbættu km gjaldi eða daggjald með ótakmörkuðum akstri. Við skil á bifreið er hagstæðara verðið fundið út með tilliti til ekinna kílómetra.
Greiðslufyrirkomulag
Við lok hvers leigusamnings er útbúinn reikningur. Greiðslufrestur reikningsins er að jafnaði 3 vikur. Einnig er möguleiki á að skuldfæra reikninginn á greiðslukort.
|