Skammtíma/mánaðarleiga með Avis
Skammtíma/mánaðarleiga með Avis
Avis býður upp á kosti og kjör bæði á styttri og lengri leigum.
Fyrir langtímaleigu í 12 mánuði eða lengur er hægt að skoða úrvalið af framboði hverju sinni inn á avislangtimaleiga.is
Mánaðarleiga:
Um er að ræða sveigjanlega lausn sem er miðuð út frá þörfum fyrirtækja og einstaklinga.
Hún hentar vel við mismunandi tilefni, hvort sem það er sérstakt söluátak, þörf á ökutæki fyrir heimilið, tímabundnar ráðningar eða verkefni er að ræða. Mánaðarleiga er lausn sem miðast við að spara viðskiptavinum okkar tíma og peninga þegar þá vantar bíl í 30 daga eða lengur.
Lýsingar á mánaðarleigu
Innifalið í mánaðarleigu:
1.650 km á mánuði
Tryggingar með sjálfsábyrgð frá 195.000 kr til 360.000 kr, fer eftir stærð bifreiðar.
Allt hefbundið viðhald á leigutíma.
Hvaða árgerð eru bílarnir?
Flestir bílar eru 1-2 ára gamlir.
Skammtímaleiga
Skammtímaleiga Avis gerir ráð fyrir leigu á bíl frá einum og upp í 28 daga og uppfyllir þannig tímabundna þörf á bíl. Skammtímaleiga tryggir fyrirtækjum og einstaklingum ávallt hagstæðasta verðið með því að hafa val á daggjaldi með viðbættu kílómetra gjaldi, eða daggjald með ótakmörkuðum akstri.
Fyrir frekari upplýsingar hafðu samband við þjónustu Avis í síma 591-4000 eða í tölvupósti á avis@avis.is